þátttaka íslenska ríkisins í kolvetnisstarfsemi.
Virðulegur forseti. Þingflokkur Vinstri grænna telur að stofnun hlutafélags um þátttöku íslenska ríkisins í kolvetnisstarfsemi eða íslensku ríkisolíufélagi sé ótímabært. Ljóst er að einhver tími mun líða þar til félagið verður stofnað og það er langur tími þangað til í ljós kemur hvort hægt verður að vinna olíu á Drekasvæðinu. Vinstri græn telja að brýnt sé að mörkuð verði stefna fyrir Ísland þar sem byggt yrði á bestu fáanlegum upplýsingum um loftslagsbreytingar og þátt jarðefnaeldsneytis í þeim breytingum. Jafnframt er afar brýnt að rannsaka áhrif olíuvinnslu á lífríki norðurslóða, einkum ef mengunarslys mundi eiga sér stað.