þátttaka íslenska ríkisins í kolvetnisstarfsemi.
Forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Lilju Rafneyju út af því að mér finnst við eiginlega vera að fara aðeins fram úr okkur, og mér finnst þetta mál alls ekki nægilega rætt. Ég er í sjálfu sér alveg sammála því að við séum með opinbert hlutafélag um þessa hagsmuni, en þetta mál er ekki rætt. Ég hef ekki orðið vör við mikla umræðu um þetta í samfélaginu og mér finnst við ekki hafa rætt það nægilega vel hér á Alþingi, þessa framtíðarstefnu, þann framtíðarblús um olíu á mjög háskalegum svæðum og þær afleiðingar sem það gæti haft ef hún finnst og slys yrði á þeim slóðum.
Mér finnst í raun og veru stefna um olíufundi ekki hafa borið nægilega á góma, sér í lagi þegar maður hugsar út í það hverjir hafa fengið heimildir til að bora og rannsaka hvort olía sé þarna út frá, því að þar á meðal fékk einhver mesti umhverfissóði sem um getur frá kínverska ríkinu gríðarlega hátt hlutfall heimilda til að gera þetta. Ég vil meiri umræðu og nýtt … (Forseti hringir.)
(Forseti (EKG): Forseti vill minna hv. þingmenn á sem taka til máls og víkja að öðrum hv. þingmönnum í ræðum sínum að gera það með því að nefna þá fullu nafni.)