144. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2015.

breytingartillaga atvinnuveganefndar við rammaáætlun.

[10:35]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Þann 23. nóvember síðastliðinn lagði hv. þm. Jón Gunnarsson, formaður atvinnuveganefndar, til að átta kostir yrðu settir í nýtingarflokk. Sá dagur hefur síðar hlotið nafnið dagur Jóns Gunnarssonar, vegna þess að hann var í öllum fjölmiðlum landsins að fjalla um þetta mál, en síðan varð ekkert um þessar fyrirætlanir þangað til nú að hv. þingmaður hefur ákveðið að fækka virkjunarkostum um helming, niður í fjóra. Um það er að segja að það er klárlega á skjön við lög um rammaáætlun, vernd og nýtingu. Það er hlutverk ráðherra, að undangenginni skoðun verkefnisstjórnar, að leggja til tilfærslu á virkjunarhugmyndum. Einn af þeim kostum sem hv. þingmaður virðist ætla að leggja hér til með munnlegum hætti, sem er afar óvenjulegt, hefur ekki hlotið afgreiðslu verkefnisstjórnar, Hagavatnsvirkjun. (Forseti hringir.) Þetta er því klárlega að minnsta kosti á tvennan hátt á skjön við lög um rammaáætlun.