breytingartillaga atvinnuveganefndar við rammaáætlun.
Herra forseti. Það er athyglisverð lögskýring hjá hv. þm. Páli Jóhanni Pálssyni að þetta sé allt annað og betra mál af því að lögbrotið hafi minnkað um helming, fjórir kostir eða fimm í staðinn fyrir átta. Þannig er það nú ekki. Ég tel hins vegar, herra forseti, óhjákvæmilegt að ræða á fundum forsætisnefndar og formanna þingflokka það sem hér hefur orðið ljóst í umræðunni og ég hef fengið staðfest hjá nefndarmönnum í atvinnuveganefnd, að í bæði skiptin hafi þetta mál borið þannig að í nefndinni að málið var alls ekki á formlegri dagskrá nefndarinnar. Það voru lagðar fram munnlegar hugmyndir formannsins í lok fundar undir liðnum Önnur mál sem kom auðvitað nefndarmönnum í opna skjöldu. Ég held að sé það algerlega óhjákvæmilegt að forsætisnefnd hlutist til um það að hv. þm. Jón Gunnarsson verði sendur á námskeið og honum kennd vinnubrögð í þessum efnum. Það er fráleitt að láta sér detta í hug að reyna að læða umdeildu stórmáli af þessu tagi svona út. Það verður að hlutast til um það að því marki sem það er áfram þannig að hv. þingmaður gegni formennsku í þingnefnd (Forseti hringir.) að hann kunni stafrófið í (Forseti hringir.) vinnubrögðum.