144. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2015.

breytingartillaga atvinnuveganefndar við rammaáætlun.

[11:06]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er eiginlega óhugsandi annað en að forseti Alþingis taki stöðu með lýðræðis- og löggjafarsamkundunni, Alþingi Íslendinga, í svona máli sem varðar ákveðin grunngildi um leikreglur og vinnubrögð. Eins og hér hefur komið fram er ekki bara verið að ganga á svig við þingsköpin heldur landslögin, lög um rammaáætlun, og þingið getur ekki verið þekkt fyrir að láta þessi vinnubrögð viðgangast, undirferli og baktjaldamakk þar sem verið er að reyna að lauma hlutum hér inn bakdyramegin. Þetta er brot á lögum um rammaáætlun, þetta er brot á þingsköpunum og virðing Alþingis er í raun og veru í húfi varðandi það hvort tekið er á þessu í eitt skipti fyrir öll, að menn þurfi ekki að standa hér frammi fyrir svona vinnubrögðum.