144. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2015.

ummæli þingmanna í fundarstjórnarumræðu.

[11:58]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. síðasta ræðumanni að það er nauðsynlegt að fá úr því skorið og fá upplýsingar um það hvaða lög það eru sem menn telja að hafi verið brotin á síðasta kjörtímabili vegna þess að allt sem þá var gert var í anda og á grundvelli laganna sem voru sett einróma í þinginu, studd af öllum flokkum.

Í annan stað finnst mér mjög mikilvægt að menn komi hingað með einhvers konar minnisblað eða greiningu á þessu og ég held að það væri tilefni til að biðja yfirlögfræðing þingsins um að taka saman út frá lögunum hvernig eigi að flokka virkjunarkosti, hvernig eigi að gera þetta í samræmi við lögin. Það væri ágætt að fá úr því skorið nákvæmlega hvernig þetta ferli er hugsað. Það er að mínu mati mjög skýrt í lögunum, en það væri ágætt að fá úr því skorið til að hægt væri að fá viðbrögð forustumanna hv. atvinnuveganefndar við því á hvaða grundvelli þeir ætla að fara fram með málið með þeim hætti sem hér er gert.