144. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2015.

ummæli þingmanna í fundarstjórnarumræðu.

[11:59]
Horfa

Ólína Þorvarðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Það er auðvitað ekki hægt að meina þingmönnum að tala um lögbrot í ræðustóli Alþingis þegar lögbrot hefur átt sér stað eins og við vorum að ræða í morgun varðandi vinnubrögð hv. þingmanns og formanns atvinnuveganefndar Jóns Gunnarssonar. Þar var eðlileg gagnrýni uppi um lögbrot og brot á þingsköpum.

En þegar hv. þm. Páll Jóhann Pálsson og hugsanlega fleiri koma síðan í ræðustól og svara þeirri gagnrýni með innihaldslausri yfirlýsingu um að lögbrot hafi átt sér stað af hálfu fyrrverandi ríkisstjórnar í þessu sama máli er verið að fleipra og gjaldfella umræðu sem á fullan rétt á sér. Það er óþolandi og ólíðandi að þingmenn þurfi að sitja undir svoleiðis fleipri og innstæðulausu tali, ásökunum um lögbrot sem aldrei hafa átt sér stað. Þess vegna tek ég heils hugar undir það, herra forseti, að nú í hádegishléi verði farið vel yfir það hvort lögbrot hafi átt sér stað og hvort(Forseti hringir.) fullyrðing hv. þm. Páls Jóhanns Pálssonar fáist staðist og að niðurstaða þeirrar skoðunar verði kynnt á Alþingi að þeirri athugun lokinni.