ummæli þingmanna í fundarstjórnarumræðu.
Hæstv. forseti. Ég varð satt að segja verulega undrandi á vinnubrögðum hv. formanns atvinnuveganefndar, Jóns Gunnarssonar, fyrir jól í því að taka svona stórt mál eins og við erum að ræða hér upp undir liðnum Önnur mál. Mig hafði bara ekki grunað að einhverjum dytti í hug að vinna svona hérna. Öllum getur svo sem orðið á og málinu var kippt til baka. Mér finnst því alveg ótrúlegt að heyra það að nú sé aftur farið fram með nákvæmlega sama hætti. Ég verð að viðurkenna að ég skil þetta ekki.
Er hv. þm. Jón Gunnarsson hræddur við umræðuna í nefndinni? Er hann hræddur við að nefndarmenn mæti undirbúnir til fundar? Er honum kannski bara sama um vönduð vinnubrögð?
Við erum kosin af þjóðinni til að starfa hér og þess vegna er lágmark að við stundum vönduð vinnubrögð og förum sjálf að lögum. Þess vegna vona ég að núna á eftir, á fundi þingflokksformanna og forsætisnefndar, verði undið ofan af þessu rugli og séð til þess að við hér inni förum að þingsköpum.