ummæli þingmanna í fundarstjórnarumræðu.
Herra forseti. Aðeins faglega eða efnislega um það sem hér er á dagskrá. Fráfarandi hæstv. umhverfisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, valdi að senda þá tillögu sem hann fékk frá verkefnisstjórn í fyrra óbreytta til þings, þ.e. aðeins Hvammsvirkjun skyldi færast úr biðflokki í nýtingarflokk. Sú tillaga verkefnisstjórnar var vandlega og faglega rökstudd.
Ástæður þess að verkefnisstjórnin gerði ekki tillögur um breytingar á fleiri virkjunarkostum voru þær að þar vantaði gögn, rannsóknir, vinnu og tíma. Niðurstaða nefndarinnar varð þess vegna sú að þeir kostir aðrir sem ráðherra óskaði eftir að yrðu skoðaðir skyldu vera áfram í bið. Það var faglega rökstudd niðurstaða. Það eru einmitt þessir kostir sem formaður atvinnuveganefndar vill nú fara að færa yfir í nýtingarflokk.
Með öðrum orðum, herra forseti, væri þessi framgangsmáti, ef hann væri af hálfu Alþingis, ekki aðeins lagalega ótækur heldur faglega gersamlega fráleitur, hann gæfi bara skít í allar faglegar röksemdir sem fyrir liggja í málinu.