144. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2015.

ummæli þingmanna í fundarstjórnarumræðu.

[12:30]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Forseti vill geta þess að klukkan er orðin hálfeitt og hefur verið boðað til þess fundar sem mjög hefur verið kallað eftir í forsætisnefnd. Forseti hyggst funda með formönnum þingflokka klukkan eitt en forseti er enn þá með fimm þingmenn hér á mælendaskrá sem óska eftir að ræða fundarstjórn forseta. Forseti vildi aðeins koma þessum skilaboðum til þingmanna og geta þess að umræddur tími fyrir fund í forsætisnefnd er kominn.