144. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2015.

ummæli þingmanna í fundarstjórnarumræðu.

[12:30]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Mér finnst mjög brýnt að það komi fram að ef það er svo að þessi ákvörðun, og hugarflug, hv. formanns atvinnuveganefndar, Jóns Gunnarssonar, verður ekki dregin til baka þá er það í mínum huga þannig að ég get ekki borið virðingu fyrir öðrum þingsköpum. Af hverju ætti ég að fara eftir þingsköpum en ekki einhver annar þingmaður? Ef forseti kemur ekki með mjög skýr fyrirmæli um að svona vinnubrögð séu ekki ásættanleg, þar sem brotið er á þingsköpum á þennan hátt, sé ég ekki tilefni til að virða þingsköp hér eins og til dæmis að hætta að tala þegar byrjað er að slá í bjölluna.

Af hverju ætti ég að sýna forseta virðingu ef þingmaður í meirihlutastjórninni kemst upp með að sýna þinginu og forseta þingsins álíka vanvirðingu og hann hefur gert hér í morgun? Það er skammarlegt og ætti hv. þingmaður að draga þessa tillögu sína til baka.