kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, til eins árs, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.
Virðulegur forseti. Eins og menn muna þá báðum við um leynilega skriflega atkvæðagreiðslu vegna þess að hér gengu menn á bak orða sinna um skipan í stjórn RÚV fyrir tveimur árum. Það var gert til þess að gefa stjórnarliðum færi á því að fara að sannfæringu sinni og samvisku samkvæmt stjórnarskrá í leynilegri atkvæðagreiðslu. Það gerði einn stjórnarliði og listi stjórnarandstöðunnar sigraði í þeirri kosningu.
Þá bar svo við, virðulegur forseti, í fyrra að stjórnarliðar hver á fætur öðrum sýndu sessunauti sínum með hvaða hætti hann hefði greitt atkvæði í leynilegri skriflegri atkvæðagreiðslu. Það tel ég, virðulegur forseti, að sé ólögmæt framkvæmd á leynilegri skriflegri atkvæðagreiðslu. Í dómi Hæstaréttar um kosningu til stjórnlagaráðs er rík skylda lögð á hendur framkvæmdaaðila kosninga að tryggja að kosningin fari leynilega fram. Það gerir hún ekki ef menn hafa verið skikkaðir til að sýna sessunautum sínum atkvæðaseðla sína. Ég fer þess vegna fram á það, virðulegur forseti, að hin leynilega atkvæðagreiðsla fari fram í hliðarherbergi (Gripið fram í.) og að þingmenn hafi færi á því að greiða þar atkvæði í einrúmi eins og vera ber í leynilegri atkvæðagreiðslu. [Kliður í þingsal.](Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. (Forseti hringir.) Treysti forseti sér ekki til að verða við því þá tel ég að hann eigi að (Forseti hringir.) lýsa því yfir í heyranda hljóði að sýni þingmenn leynilega atkvæðaseðla sína (Forseti hringir.) þá ógildi þeir með því kosninguna og hana verði að endurtaka, (Forseti hringir.) því að leynileg atkvæðagreiðsla verður að vera leynileg.