144. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2015.

kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, til eins árs, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.

[15:53]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Mér finnst alltaf svolítið skrýtið að hlusta á sjálfstæðismenn tala um að Ríkisútvarpið sé ekki nógu sjálfstætt, sérstaklega þegar þeir kvarta á sama tíma undan því að RÚV sé svo vinstri sinnað og svo ESB-sinnað og virðist þá í kjölfarið þurfa að hafa eins mikla stjórn yfir stofnuninni og mögulegt er. Það vekur sífellt athygli mína að í hvert sinn sem við greiðum atkvæði um RÚV þá fyllist salurinn eins og skot. Það er eins og sjálfstæðismenn sérstaklega en ríkisstjórnin almennt geri allt sem í hennar valdi stendur til að tryggja að Ríkisútvarpið sé eins ósjálfstætt og mögulegt er. Hvort sem það er í atkvæðagreiðslum sem þessum eða með því að hóta niðurskurði fyrir óþægilegan fréttaflutning eða hvað það er þá líður mér alltaf hálfkjánalega þegar ég sit hér og greiði atkvæði um það hvernig fjölmiðlun í þessu landi eigi að vera háttað. Við ættum að vera að reyna að aðskilja vald Alþingis frá Ríkisútvarpinu með meira móti en ekki minna.

Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verði að jafnaði opnir.