kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, til eins árs, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Hv. þm. Helgi Hjörvar kom hér upp í byrjun og lét að því liggja að einhverjir þingmenn hefðu ekki fylgt sannfæringu sinni. Hann lét líka að því liggja að einhverjir þingmenn hefðu verið að sýna á miða.
Þar sem hv. þingmaður er nú orðinn sjálfskipaður kosningaeftirlitsmaður hér í þingsal þá langar mig til að tilkynna hæstv. forseta að sá sem hér stendur hefur ávallt fylgt sannfæringu sinni hér í atkvæðagreiðslum og mun einnig gera það í þessari atkvæðagreiðslu; hefur heldur ekki sýnt á miða og mun ekki gera það. Bara til að upplýsa hv. þm. Helga Hjörvar, sjálfskipaðan kosningaeftirlitsmann hér í þinginu, þá hefur sá sem hér stendur ávallt haft það í heiðri að kjósa eftir sannfæringu sinni og vinna að lögum Alþingis. Og ég vildi bara tilkynna kosningaeftirlitsmanni ríkisins, hv. þm. Helga Hjörvar, það hér í upphafi atkvæðagreiðslunnar.