kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, til eins árs, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.
Já, þetta kalla ég virkt eftirlit. (Gripið fram í.)
Virðulegi forseti. Mér er það algjörlega óskiljanlegt hvers vegna núverandi ríkisstjórn er ekki tilbúin til að láta stjórn Ríkisútvarpsins endurspegla Alþingi, þ.e. með hvaða hætti flokkar hafa verið kosnir hingað inn. Það er ekki nákvæmlega það sem hér er verið að gera
Með þessu eru ríkisstjórnarflokkarnir með 2/3 hluta atkvæða í stjórn Ríkisútvarpsins, sem er ekki það fylgi sem þessir flokkar fengu í síðustu kosningum. Þetta er gert á kostnað fulltrúa Pírata, þannig að það er beinlínis verið að taka ákvörðun um það hér að þessi ríkisstjórn ætli að ganga lengra en kosningarnar sögðu til um, vera með aukinn meiri hluta og ýta fulltrúa Pírata út úr því að geta tekið þátt í starfsemi Ríkisútvarpsins.
Virðulegi forseti. Mér finnst ríkisstjórnarflokkarnir og þingmenn þeirra hér skulda okkur það að segja okkur hvers vegna þeir leggja svo mikla áherslu á þetta að þeir fylla alltaf þingsal í þessari atkvæðagreiðslu; (Forseti hringir.) mér finnst þetta óhugnanlegt í lýðræðisríki.