kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, til eins árs, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Það eru til leiðir til að stuðla að sjálfstæði ríkisfjölmiðils. Þær leiðir eru hins vegar ekki að færa stjórn þess ríkisfjölmiðils nær pólitíkinni heldur fjær eins og var gert en síðan tekið til baka af þessari ríkisstjórn. Það að hóta fjársvelti og síðan standa við það vegna þess að fjölmiðlunin þykir ekki nógu heppileg er ekki leið til að stuðla að sjálfstæði nokkurs fjölmiðils. Þess vegna er það ekki trúverðugt þegar stjórnarmenn stinga upp á því hér af og til að lausnin sé að selja RÚV. Stjórnin vill eyðileggja RÚV til þess að enginn annar kostur sé í stöðunni, svo mikið er augljóst. Þegar kemur að þessu stjórnarrugli sem átti sér stað á sínum tíma voru stjórnarmenn sjö, þar af fjórir frá stjórn, þrír frá stjórnarandstöðu. Það voru ekki Píratar sem hófu þá umræðu að koma sínum manni að enda trúum við því ekki að pólitíkin eigi að stjórna Ríkisútvarpinu eða öðrum fjölmiðlum ef út í það er farið. Það kom frá stjórninni að fjölga í stjórn Ríkisútvarpsins og hafa þá stjórnarliðana (Forseti hringir.) fleiri en sama fjölda stjórnarandstöðumeðlima. Fulltrúar stjórnar (Forseti hringir.) eru núna 67% (Forseti hringir.) stjórnar RÚV á meðan fyrra fyrirkomulag var (Forseti hringir.) 57%, sem er mun nær 51,1% sem er (Forseti hringir.) fylgið sem núverandi ríkisstjórn fékk í síðustu kosningum.