144. löggjafarþing — 55. fundur,  22. jan. 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[17:52]
Horfa

Róbert Marshall (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég spyr hv. þingmann: Er ekki eðlilegt að við spyrjum okkur í þessu máli hvernig best sé að flytja stofnanir út á land, burt séð frá því hvað hefur staðið í lögum áður eða ekki? Það hlýtur að vera grundvallarspurning í málinu. Eini rökstuðningurinn sem ég hef heyrt fyrir því að setja þetta inn í lögin, að ráðherra hafi heimild til að ákveða staðsetningu stofnunar, er að slík heimild hafi verið í lögunum um Stjórnarráð Íslands fyrir breytinguna sem var gerð árið 2011 og ekki hafi verið færður neinn sérstakur rökstuðningur fyrir því af hverju verið var að fella þetta burt.

Ég get upplýst það, vegna þess að ég var í nefndinni sem fylgdi þessu máli hér í gegnum þingið á síðasta kjörtímabili, að menn vildu ekki hafa þetta ákvæði lengur í lögunum. Það er ástæðan fyrir því að þau voru felld út. Menn eru almennt á þeirri skoðun eða voru það að minnsta kosti að full ástæða væri til þess að í hvert skipti sem menn tækju svona ákvarðanir yrði það gert hér á vettvangi þingsins, að menn færu í gegnum umræðu um kosti og galla, að hægt væri að spyrja stjórnvöld, löggjafarvaldið gæti spurt framkvæmdarvaldið, gagnrýninna spurninga, veitt því aðhald þegar þessi sjónarmið kæmu fram og þessar fyrirætlanir væru kynntar. En það að setja málið í hendurnar á einum ráðherra og láta hann ákveða það með þessum hætti er slæmt afturhvarf til tímabundins ástands í lögunum, að mínu mati.

Ég vil aðeins fá viðbrögð hv. þingmanns, sem hefur líka reynslu úr stjórnsýslunni og af því að hafa verið ráðherra, við þessu, fá álit hennar á þessum meginspurningum í málinu.