Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það er þá allt saman með nokkrum ólíkindum að ríkisstjórnin fari fram með yfirlýsingu um stóra ákvörðun eins og þessa, ekki bara þannig að hún komi starfsmönnum viðkomandi stofnunar jafn illilega að óvörum og raunin varð heldur hafi málið verið svo illa undirbúið að menn hafi ekki áttað sig á því að þá skorti lagaheimildir til að gera það sem þeir lýstu yfir og höfðu ekki einu sinni gert ráðstafanir til að hafa tiltæka þá fjármuni sem þeir þurftu síðan til að geta fjármagnað þær reddingar sem þeir reyndu að fara í eftir á með einhverjum loforðum með einhver fjárútlát sem þó enginn gekkst inn á.
Ég vildi af þessu tilefni bara undirstrika að þetta er okkur ágætisáminning um það hvers vegna þarf að vera agi og festa í þeim ramma sem Stjórnarráðið starfar í vegna þess að það eru því miður allt of mörg lausatök og svo fjölmörg mál of illa undirbúin.
Ég vildi í síðari andsvari mínu inna hv. þingmann eftir því sem lýtur að skráningu á samskiptum ráðherra, hvort það sé ekki einmitt ákaflega mikilvægt að festa þau ákvæði kirfilega niður, sérstaklega í ljósi þess álits sem við fengum frá umboðsmanni Alþingis fyrir helgina og laut að samskiptum ráðherra við yfirmann undirstofnunar sinnar sem virðast því miður ekki vera til á skrá. Ekki liggur fyrir efni samtala hæstv. ráðherra við undirmann sinn sem var þó í því tilfelli að rannsaka ráðherrann, ekki er til yfirlit um þau símtöl sem þar fóru á milli, hvenær þau fóru á milli, hvenær þau fóru fram, hve löng þau voru, hversu mörg þau voru o.s.frv. Er það okkur ekki enn ein áminningin um að það er ástæða til að herða á rammanum um (Forseti hringir.) …?