144. löggjafarþing — 57. fundur,  27. jan. 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[16:00]
Horfa

Katrín Júlíusdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans góðu ræðu hér áðan. Ég er algjörlega sammála flestu sem fram kom í henni og kannski ekki síst því síðasta. Þetta snýst ekki bara um það að menn geti af hentisemi ákveðið að leggja niður stofnanir eða færa þær til, stofnanir sem menn eru að „refsa“ eins og við höfum svo sem séð í sögunni, heldur líka um það að menn geti ekki farið í hreppaflutninga með stofnanir í hreppapólitík. Það finnst mér líka alvarlegt vegna þess að við þurfum að geta stólað á ákveðinn stöðugleika og að fagmennska liggi að baki ákvörðunum manna. Ég er sammála því sem hv. þingmaður sagði hér áðan að það getur vel verið að Fiskistofa eigi best heima faglega fyrir norðan, við vitum ekkert um það, okkur hefur ekkert verið sýnt neitt sem segir okkur það annað en bara orð ráðherrans.

Ég vil líka nefna í þessu samhengi að það vantar algjörlega heildarsýn. Hvað ef menn eru með þá stefnu að fjölga eigi störfum hins opinbera úti á landi? Þá gengur ekki að horfa bara á einhverja eina stofnun og flytja hana á meðan störf flytja í hina áttina annars staðar frá. Þar vil ég nefna, og hv. þm. Brynhildur Pétursdóttir nefndi þetta í ræðu sinni hér fyrir helgi, það sem við náðum ekki að koma fram með, þ.e. að nákvæmlega þann sama dag voru þrjú sérhæfð störf flutt frá Akureyri, Akureyrarflugvelli, í bæinn vegna þess að Isavia breytti fyrirkomulagi sínu á flugmálum fyrir norðan. Það stenst því ekki skoðun að einu eða neinu leyti að menn séu að gera þetta samkvæmt einhverri áætlun né heldur á faglegan hátt.

Þess vegna tek ég undir það með hv. þingmanni að við þurfum einhvern veginn að reyna að (Forseti hringir.) setja fyrir lekann í þessu frumvarpi.