Stjórnarráð Íslands.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Guðmundi Steingrímssyni fyrir góða ræðu. Það er tvennt sem ég vil þó fá skýrar fram. Í 1. gr. frumvarpsins er kveðið á um heimild til ráðherra að flytja stofnanir að eigin geðþótta og þingmaðurinn talar um að það þurfi að koma fram reglur um hvernig það eigi að gerast. Ég vil spyrja: Telur þingmaðurinn yfir höfuð þörf á því? Ef það er í höndum löggjafans þá er miklu öruggara að fram fari mat í hvert og eitt skipti. Ég velti mér fyrir mér: Er þörf á að breyta lögunum? Er eitthvað sem kallar á það?
Í öðru lagi vildi ég spyrja hv. þingmann út í b-lið 10. gr. Samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands í dag má flytja fólk á milli starfa, vilji það það sjálft að sjálfsögðu og ef báðir ráðuneytisstjórar samþykkja, sá sem er yfir núverandi starfsmanni og sá sem er yfir því ráðuneyti sem starfsmaðurinn flyst til. Þetta var gert til þess að auka sveigjanleika innan Stjórnarráðsins, gefa fólki tækifæri til þess að þroskast í starfi og fá að takast á við ný verkefni en missa ekki mannauðinn út. En þessi grein gengur svo miklu lengra. Samkvæmt henni er það þannig, og ég skil það þannig, að jafnvel sé verið að ganga fram hjá auglýsingu um ráðuneytisstjóra. Þannig að ef hv. þingmaður yrði ráðherra fljótlega og hann vildi fá starfsmann, einhvern sérfræðing í undirstofnun ráðuneytis inn í sitt ráðuneyti, jafnvel í háttsetta stöðu, þá gæti hann gert það. Þarna er verið að ganga algjörlega á svig við prinsipp starfsmannalaga. Er þetta ekki of langt gengið að mati þingmannsins?