144. löggjafarþing — 57. fundur,  27. jan. 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[17:23]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf) (andsvar):

Herra forseti. Ég tek undir það að vonandi verður rætt um það í nefndinni að þessi grein verði felld brott og öðrum breytt. Fyrst við tölum um Fiskistofu þá er sjávarútvegurinn úti um allt land en Fiskistofa er hér á höfuðborgarsvæðinu ekki síst til þess að vera nálægt sjávarútvegsráðuneytinu. Hún sinnir ráðgjöf og eftirliti og safnar gögnum og öðru fyrir sjávarútvegsráðuneytið og veitir því ráðgjöf. Þess vegna er ekkert óeðlilegt að hún sé á þessu svæði. Þar að auki eru fimm starfsstöðvar Fiskistofu úti um allt land; á Höfn, Akureyri, Ísafirði og í Stykkishólmi. Fiskistofa er því með starfsemi og starfsstöðvar úti um allt land. Þess vegna kemur það enn þá meira á óvart að það skuli eiga að færa hana þangað. Hún er þegar með starfsstöð á Akureyri. Þess vegna er þetta enn þá undarlegra og hefði mátt ræða það miklu betur og fá niðurstöðu um hvort hún væri betur sett á Akureyri en hér.