Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Ég tek undir það og við vorum einmitt með ráðuneyti á fundi okkar í morgun varðandi hina nýju Menntastofnun. Látið er að því liggja að nokkur sátt sé um það mál. Við vitum þó að svo er ekki, það var ekki eining innan þessara stofnana um sameininguna. Ég geri mér vel grein fyrir því að fólk vill standa vörð um störf sín og óttast breytingar og annað því um líkt, en hér er verið að búa til eitthvert millistig. Maður áttar sig ekki alveg á því hver hinn raunverulegi tilgangur er. Það kom fram í morgun.
Það er mikið órætt í þessum efnum, til dæmis varðandi samskipti við framhaldsskólann. Þetta er ekki alveg hugsað til enda, finnst mér. Mér finnst faglegi rökstuðningurinn ekki vera til staðar, sérstaklega ekki á bak við 1. gr., ekki bara 6. gr. eða aðrar greinar sem lúta því að draga þessi mál aftur inn í ráðuneytin. Fram kom í morgun að vitað er að það sé meðal annars stefna ríkisstjórnarinnar, hún hneigist til einkaframtaks til dæmis varðandi námsgagnagerð.
Ég held að það sé ekki eitt af því sem skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis benti okkur á. Ég held að hún hafi verið að benda okkur á hina margumtöluðu armslengd, að styrkja frekar ráðuneytin með því að stækka þau og hvatti til þess að þau hefðu tilskilin verkefni. En þarna er í rauninni verið að búa til eitthvert millistig. En samt er ráðherra í raun yfir þeim vegna þess að það verður ekki stjórn, það verða fagráð. Það verður kannski svoleiðis gert varðandi aðrar þær stofnanir sem þarna verða dregnar inn að ráðherra hefur áfram yfir þeim vald.