144. löggjafarþing — 57. fundur,  27. jan. 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[17:53]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, ég kom einmitt inn á það áðan að í sjálfu sér skiptir ekki máli hvaða stofnun eða hvaða byggðarlag eða eitthvað slíkt á í hlut. Ég hef sagt að mér finnst þessi framkvæmd setja ljótan blett á flutning opinberra starfa. Ég benti meðal annars á að við værum með skýrslu frá Eyþingi sem hefði vissulega lagt til flutning á Fiskistofu en á fimm ára tímabili. Það er ágætisundirbúningur í sjálfu sér í því. Ég hefði viljað sjá einhverjar slíkar útfærslur. Helst hefði ég náttúrlega viljað sjá það hjá ríkisstjórninni, sem talar um það í stjórnarsáttmála sínum að færa störf út á land, að fyrir lægi einhver heildaráætlun um uppbyggingu opinberra starfa á landsbyggðinni. Ég hefði viljað fá faglega nálgun á það. Ef komið hefði fram frumvarp um flutning Fiskistofu eða einhverrar annarrar opinberrar stofnunar hefði ég viljað að við hefðum getað sótt okkur faglega umfjöllun um það mál til þeirra aðila sem ættu mest samskipti við tiltekna stofnun, af því að sumar stofnanir geta átt heima hvar sem er á meðan aðrar eiga meira heima hér þar sem hjarta stjórnsýslunnar er.

Ég hefði viljað fá svör frá hæstv. forsætisráðherra, af því að ég sé að hann er kominn í salinn, varðandi það sem nefnt var hér fyrr í dag, að búið væri að slá flutning Fiskistofu af. Er það rétt eða stendur sú ákvörðun enn þá óhögguð? Ég var svo með fleiri spurningar til hæstv. ráðherra sem ég vona að hann leitist við að svara.

Ég held að það sé alltaf best að gera þetta með sem faglegustum hætti. Í ljósi þeirra svara sem ráðuneytin gáfu þingmanni varðandi flutning opinberra (Forseti hringir.) stofnana stendur ekki til að flytja neinar aðrar stofnanir, að minnsta kosti ekki í bráð.