144. löggjafarþing — 57. fundur,  27. jan. 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[18:49]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er sjálfsagt að velta fyrir sér þessari athugasemd hv. þingmanns í þeirri vinnu sem fram undan er. Ég tel reyndar að hann ofmeti hættuna á því að Fiskistofa verði flutt fram og aftur um landið eftir því hver er ráðherra málaflokksins á hverjum tíma og ég held að það sé kannski helst til langt gengið að fullyrða að Fiskistofa eða höfuðstöðvar hennar séu staðsettar í Hafnarfirði núna eingöngu vegna þess að sjávarútvegsráðherra á sínum tíma hafi verið úr Hafnarfirði. Fiskistofa starfar raunar um allt land og það gleymist oft í þessari umræðu að þó að höfuðstöðvarnar flytjist á Akureyri, þar sem þær eiga mjög vel heima, m.a. með rökum sem ég rakti aðeins áðan, er ekki verið að leggja af starfsemi Fiskistofu í Hafnarfirði og raunar hægt að framkvæma þennan flutning yfir tíma á þann hátt að það valdi lágmarksraski á (Forseti hringir.) starfsemi stofnunarinnar.