144. löggjafarþing — 57. fundur,  27. jan. 2015.

Stjórnarráð Íslands.

434. mál
[18:59]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í fyrsta lagi var ég nú ekki að ýja að því að ákveðnir þingmenn kjördæmisins hefðu verið að setja sig upp á móti flutningi Fiskistofu, ég var að fullyrða það eins og komið hefur fram í yfirlýsingum hv. þingmanna hér í þessum sal og í fjölmiðlum.

Hvað varðar áframhaldandi athugasemdir við aðferðafræðina, eins og þá athugasemd sem féll hjá hv. þingmanni hér áðan, um að það hafi verið alveg ómögulegt að starfsmenn Fiskistofu hafi ekkert vitað um að til stæði að flytja höfuðstöðvar stofnunarinnar fyrr en þeim var tilkynnt um það. Þá er nú ekki annað svar til við því en (Gripið fram í.) að menn vita ekki af hlutum fyrr en þeim er tilkynnt um þá nema þeir komist að því eftir krókaleiðum. Það hefði verið mjög óeðlilegt að taka slíkar ákvarðanir á bak við tjöldin án þess að láta starfsmenn vita. Ráðherrann taldi miklu eðlilegra og heiðarlegra að starfsmenn fengju að vita (Forseti hringir.) við fyrsta mögulega tækifæri hvað stæði til og svo yrði unnið með starfsmönnum að því að framkvæmdin gengi sem best fyrir sig.