stefna ríkisstjórnarinnar um afnám gjaldeyrishafta.
Herra forseti. Hér er nú spurt um of mörg atriði til að ég geti brugðist við þeim öllum.
Fyrst varðandi samtal við kröfuhafa. Það kemur ekki til greina að íslensk stjórnvöld fari í einhvers konar samningaferli um það hvers konar aðlögun þarf að eiga sér stað eftir afnám hafta. Það verður ekki samið um það. Við munum mynda okkar eigin skoðun á því hvað þurfi að gerast til þess að hægt sé að hleypa eignum slitabúanna og öðrum þeim eignum út fyrir höft, hvort það sem eru aflandskrónur eða aðrar krónur sem vilja komast út úr íslenska hagkerfinu. Þegar við höfum komist að niðurstöðu um það erum við ekki til samninga um það. Það getur ekki verið samningsatriði. Það væri þá jafngildi þess að við ætluðum að semja um það hversu mikið áfall við ætluðum að láta dynja á heimilunum og atvinnustarfseminni í landinu. Það munum við aldrei gera.
Við erum hins vegar ávallt tilbúin að hlusta. Eitt af því sem ég tel að við þurfum kannski að glöggva okkur betur á eru atriði sem geta auðveldað slitabúunum að ljúka nauðasamningsgerðinni. Ef það eru (Forseti hringir.) lagabreytingar eða önnur atriði sem geta hjálpað til (Forseti hringir.) við slíkt þá held ég að við eigum að (Forseti hringir.) bregðast við.