náttúrupassi.
Virðulegi forseti. Ég tel mjög mikilvægt að þetta liggi fyrir þegar við ræðum svona stórt mál eins og að taka upp nýtt gjaldtökukerfi á ferðamannastaði. Í því sambandi vil ég raunar nefna annað, það er spurningin um skilgreininguna á ferðamannastöðum. Hæstv. ráðherra vitnaði til náttúruverndarlaga og að þar lægi fyrir heimild til gjaldtöku, en sú heimild á við um það sem við köllum náttúruverndarsvæði sem eru mjög skýrt skilgreind og afmörkuð í lögum og reglugerðum. Það er mikið ferli á bak við það að svæði fái þá stöðu. Sú skilgreining sem hér liggur á bak við hugtakið ferðamannastaðir er miklu opnari. Þannig að í sjálfu sér veltir maður því fyrir sér hvort það geti ekki eins mörg svæði fallið undir þá skilgreiningu. Ég tel því að heimildin sem hæstv. ráðherra vísaði til í náttúruverndarlögum geti kannski ekki talist sambærileg.
En hvað varðar það að fá einkaaðila til liðs við þetta held ég að það sé auðvitað stórt umhugsunarefni ef þetta fyrirkomulag verður ofan á og Alþingi samþykkir að koma á gjaldtöku í gegnum náttúrupassa að hér verði áfram heimilt að taka gjald út um allt land (Forseti hringir.) af hálfu einkaaðila og þar með verði í raun og veru ekkert samræmt (Forseti hringir.) gjaldtökukerfi. Ég held að það hljóti að þurfa að liggja fyrir áður en við til að mynda leiðum þetta mál til lykta.