náttúrupassi.
Virðulegur forseti. Mér er fullkunnugt um að hv. þm. Ólína Þorvarðardóttir er ekki hv. þm. Svandís Svavarsdóttir, enda var ég ekki að gera því skóna. Ég var bara að vísa í þessa grein sem hugmyndafræði um að þeir sem njóta náttúrunnar, njóta þessara innviða sem byggðir eru upp á ferðamannastöðum, taki þátt í þeirri uppbyggingu og að það sé í samræmi við einn grundvallarþáttinn í umhverfisrétti.
Ef við hefðum haft þá framsýni að stofna auðlindasjóð stæðum við ekki hér, sagði hv. þingmaður. Það er nefnilega nákvæmlega málið. Ég man reyndar ekki eftir umræðum um að stofna einhvern auðlindasjóð, (Gripið fram í.) ég man ekki eftir að hv. þingmaður hafi á síðasta kjörtímabili lagt til stofnun einhvers auðlindasjóðs til að taka þetta mál á dagskrá. Ég man ekki eftir því. Þá leiðréttir þingmaðurinn mig ef ég hef misst af því. (ÓÞ: … betur og hlustað betur.) Það er samt punkturinn, ef einhverjir hefðu haft þá framsýni (Forseti hringir.) fyrir fimm, tíu, fimmtán, tuttugu árum til að tryggja fjármögnun þessara atriða værum við ekki hér. Það er það, sú er staðan sem við erum í (Forseti hringir.) og það er sú staða sem ég ætla að beita mér (Forseti hringir.) fyrir að verði lagfærð.