starfsskilyrði þekkingarfyrirtækja.
Virðulegur forseti. Úr því að talið berst að útúrsnúningum er að sjálfsögðu fráleitt af hv. þingmanni að halda því fram að ég hafi talið að þekkingarfyrirtæki væru ekki þekkingarfyrirtæki. Þvert á móti benti ég hv. þingmanni á að fjölmörg fyrirtæki til viðbótar við þessi tvö sem hann hafði fundið teljist þekkingarfyrirtæki. Af ræðu hv. þingmanns mátti skilja að öll stærri fyrirtæki á Íslandi nema tvö væru þekkingarlaus fyrirtæki. Svo er ekki.
Hvað varðar viðbrögðin við þessu og hvernig við viljum bæta starfsaðstöðu fyrirtækja á Íslandi viljum við halda áfram að bæta hana með því að skapa hér góð rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki, rekstrarskilyrði sem hafa batnað hratt frá því að þessi ríkisstjórn tók við að því marki að um 6 þús. ný störf hafa orðið til á Íslandi á þeim skamma tíma sem liðinn er frá því að ríkisstjórnin tók við.
Hvað varðar höftin þekkir hv. þingmaður það að þar er að vænta tíðinda innan ekki allt of langs tíma, (Forseti hringir.) en það er mjög mikilvægt að hv. þingmaður skipi sér ekki í lið með þeim sem setja þrýsting á íslensk stjórnvöld til að afnema höftin á þann hátt að ekki verði staðinn vörður um hagsmuni almennings á Íslandi.