sameining háskóla.
Virðulegi forseti. Mig langar að ræða við hæstv. menntamálaráðherra um þær hugmyndir sem uppi hafa verið um að sameina þrjár smærri háskólastofnanir í Norðvesturkjördæmi, þ.e. Háskólann á Hólum, Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Háskólann á Bifröst. Mér bárust fregnir af því að haldið hefði verið málþing um þessar hugmyndir á föstudaginn var þar sem hæstv. ráðherra var meðal frummælanda. Ég hef áhuga á því að fá fram afstöðu hæstv. ráðherra til nokkurra þátta sem lúta að þessu máli, sem og að sjálfsögðu upplýsingar um gang málsins. Fyrir liggur að hæstv. ráðherra hefur sagt að málið sé enn á því stigi að verið sé að afla gagna og skoða þá hugmynd.
Ég spyr: Hefur verið gerð fýsileikakönnun af hálfu ráðuneytisins á faglegum ávinningi af því að sameina þessar þrjár háskólastofnanir, í ljósi þess að námsframboð þeirra er nokkuð mismunandi? Hvaða faglegi eða fræðilegi ávinningur gæti verið af því?
Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra: Hefur könnun verið gerð á því hvort slík sameining gæti skilað fjárhagslegum ávinningi? Eins og við vitum öll sem sýslað höfum með fjármál þessara stofnana þyrftu þær allar líklega á talsvert meira fé að halda, að minnsta kosti sem sjálfstæðar stofnanir.
Í öðru lagi langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Ef slíkar hugmyndir næðu fram að ganga liggur þá fyrir hvort rekstrarformi þessara tveggja opinberu háskóla yrði breytt í sjálfseignarstofnanir og mundi þá fylgja upptaka skólagjalda við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri og Háskólann á Hólum? Það væri þá talsverð breyting. Styður hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra það? Það kallar auðvitað á miklu meiri umræðu í þessum sal ef Ísland ætlar að sverja sig frá öðrum Evrópuþjóðum í því að auka æ meira upptöku skólagjalda. Það þarf ekki að fylgja breytingu á rekstrarformi en ég vil gjarnan fá að heyra afstöðu hæstv. ráðherra hvað þetta varðar.
Að lokum langar mig að spyrja hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra: Er það afstaða hans að þessi sameining sé besti kosturinn, (Forseti hringir.) af því að hann hefur lýst áhuga sínum á ýmsum sameiningum til þess að auka gæði (Forseti hringir.) háskóla og vísindastarfs á Íslandi?