144. löggjafarþing — 60. fundur,  2. feb. 2015.

viðbrögð Kópavogsbæjar við úrskurði kærunefndar jafnréttismála.

[15:26]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur fyrir þessa fyrirspurn. Ég held að mjög mikilvægt sé að við förum vel yfir þessar aðstæður. Ég þekki dæmi um það sem hefur verið gert í Stjórnarráðinu og í opinberri stjórnsýslu þar sem hafa verið breytingar, að menn hafa farið yfir þau laun sem starfsmenn fá og í einhverjum tilvikum lækkað viðkomandi starfsmenn til að tryggja að ekki sé órökstuddur launamunur á milli kynja í sambærilegum störfum. Það hefur hins vegar ekki verið í tengslum við kærur eins og hér hefur komið upp.

Ég held að það sé líka mjög mikilvægt, og það tengist mikilli og góðri vinnu sem hefur verið unnin í fjöldamörg ár, jafnvel í áratugi, sem snýr að upptöku jafnlaunastaðalsins. Hluti af honum er náttúrlega það að hver og einn atvinnurekandi, sveitarfélög, opinberar stofnanir og fyrirtæki, allir þeir sem eru með fólk á launum, fer yfir launakerfi sitt og hefur frumkvæði sjálfur að því að tryggja að það sé enginn óútskýrður launamunur, þá væntanlega á grundvelli kynsins sem er til staðar innan viðkomandi starfsemi. Ég hef eins og hv. þingmaður áhyggjur af því að þetta geti gert það að verkum að fólk verði síður líklegt til að reyna að leita réttar síns og koma í veg fyrir kynbundinn launamun, sem er algjörlega óásættanlega hár á Íslandi.