144. löggjafarþing — 60. fundur,  2. feb. 2015.

einkavæðing í heilbrigðiskerfinu.

[16:10]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka þátttakendum fyrir góða og að mörgu leyti skýrandi umræðu. Hér liggur fyrir eftir þessa umræðu að sótt er að samstöðunni um félagslegar forsendur heilbrigðiskerfisins. Sú samstaða er í hættu vegna þess að hér kemur fram í ræðum ekki bara hæstv. ráðherra heldur fleiri þingmanna að menn segja, rétt eins og hæstv. ráðherra segir, að rekstrarformið sjálft sé algjört aukaatriði. Þar er ráðherrann og aðrir þeir þingmenn sem hafa talað á þeim nótum ekki sammála 80% þjóðarinnar sem vilja félagslega heilbrigðisþjónustu, félagslega rekna og félagslega hugsaða heilbrigðisþjónustu.

Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir segir í blaðagrein nú á dögunum, með leyfi forseta:

„Ef jöfnuður í heilbrigðisþjónustu er markmið, þá er aukinn einkarekstur ekki svarið. Jöfnuður í þessu samhengi er viðfangsefni stjórnmálanna; ekki markaðarins.“

Við verðum að muna að einkavædd eða einkarekin heilbrigðisþjónusta er dýrari en opinber heilbrigðisþjónusta, og af hverju er það? Í fyrsta lagi vegna þess að meiri stjórnunarkostnaður er almennt í einkarekinni heilbrigðisþjónustu og reyndar líka lægri laun til þeirra sem sinna daglegum störfum og stoðþjónustu eins og ræstingum. Aukinn kostnaður einkarekinnar heilbrigðisþjónustu fer að miklu leyti í laun yfirmanna og millistjórnenda en lítið til almennra starfsmanna. Þetta er veruleikinn. Hin ástæðan fyrir því að einkarekin heilbrigðisþjónusta er dýrari er sú að greiða þarf eigendum arð. Ef það er gert, að greiða eigendum arð út úr kerfinu, er sá arður stór hluti af veltu viðkomandi sjúkrastofnunar. Einkarekstur er nefnilega gróðarekstur. Hæstv. ráðherra hefur enn ekki svarað því, og ég mundi vilja óska þess að hann svaraði því hér í lokaræðu sinni: Er verjandi að taka gróða út úr heilbrigðiskerfinu? Er verjandi að gera (Forseti hringir.) heilsuleysi og sjúkdóma að féþúfu?