144. löggjafarþing — 61. fundur,  2. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[17:37]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég átti nú svo sem ekki von á að við hv. þm. Ögmundur Jónasson værum nákvæmlega sammála í þessu máli, en þó vil ég að við reynum að nálgast hvort annað. Við megum ekki missa sjónar á því um hvað við erum að fjalla hérna og ég held að við deilum þeirri skoðun að málið snýst um að koma íslenskri náttúru til varnar, við getum verið sammála um það.

Ég kom hérna upp aðallega til þess að gera athugasemd við nokkur atriði. Mér finnst ekki málum til framdráttar að ýjað sé að því, eins og hv. þingmaður gerði, að það séu einhverjir í alvörunni að reyna að skapa eitthvert neyðarástand til þess að finna sér tækifæri til að græða peninga. Mér finnst að við eigum að hafa umræðuna á hærra plani en það. Það þarf ekki annað en að fara vítt og breitt úti um landið til að sjá að það þarf að bregðast við. Við höfum ekki staðið okkur sem skyldi. Hægt er kenna einhverjum um það en það þýðir ekki, við nálgumst ekki lausnina með þeim hætti. Við þurfum að bregðast við og passa upp á að náttúran, sem við deilum sannarlega væntumþykju gagnvart, bíði ekki frekara tjón. Það er viðfangsefnið og við skulum halda okkur við það.

Ekki er verið að festa í sessi heimildir einkaaðila í þessu máli frekar en í gistináttagjaldinu sem hv. þingmaður átti meðal annarra þátt í að koma á í tíð seinustu ríkisstjórnar. Ekki var tekið á því lögfræðilega álitamáli þar sem uppi er, þ.e. hvort einkaaðilum heimilt sé að selja aðgang að landi sínu. Þarna togast á tvö af mikilvægustu réttindum okkar borgaranna; þ.e. eignarrétturinn, sem varinn er af stjórnarskrá, og almannarétturinn sem varinn (Forseti hringir.) er af ýmsum lögum. Það er ekki útkljáð núna og það var ekki útkljáð þegar hv. þingmaður var ráðherra (Forseti hringir.) og hafði hann þó tækifæri til að gera það.