náttúrupassi.
Hæstv. forseti. Er hv. þingmaður mér sammála um það að ef þetta frumvarp verður að lögum verði þar með stigið mjög örlagaríkt skref? Hvers vegna örlagaríkt? Jú, vegna þess að þá kann að vera festur í sessi eignarréttur sem ekki var áður til staðar. Það er nákvæmlega þetta sem gerðist í kvótakerfinu. En það var ekki ætlun margra þeirra sem samþykktu kvótakerfið í þeirri mynd sem við þekkjum það að staðfesta einkaeignarrétt yfir auðlindinni til frambúðar. Það var ekki ásetningur mjög margra sem veittu því frumvarpi brautargengi.
Síðan líður tíminn og það verður ákveðin þróun sem festir þau réttindi í sessi. Nú lít ég ekki á þetta sem einkaeignarrétt til frambúðar (Forseti hringir.) en það er margir sem eru farnir að túlka þetta á þá vegu. (Forseti hringir.) Er sú hætta fyrir hendi í þessu tilviki líka?