náttúrupassi.
Hæstv. forseti. Það er rétt hjá hv. þm. Willum Þór Þórssyni, ég er einmitt að horfa til 4. gr. þar sem talað er um að menn geti sótt um aðild. Frumvarpið nær eingöngu til ríkisins og má skilja það þannig að samkomulag sé um að sveitarfélögin fari sjálfkrafa undir þetta fyrirkomulag en þó kemur hvergi fram að það hafi verið samþykkt af sveitarfélögunum sem eru sjálfstætt stjórnsýslustig út af fyrir sig. Við ætlum þá að setja lög á það en við treystum okkur ekki til að gera það gagnvart einkaaðilum. Vonbrigði mín eru þau að það skuli ekki ná utan um heildina. Ef ég hef skilið hæstv. ráðherra rétt er það gert með mikilli virðingu fyrir einkaréttarákvæðum stjórnarskrárinnar. Hæstv. ráðherra orðaði það þannig að þarna tækjust á ákveðin sjónarmið sem eru almannarétturinn og eignarrétturinn og þar með einkaréttur til nýtingar.
Ég efast ekki um að það séu átökin sem um er að ræða en þá kem ég aftur að því: Hvaða skilaboð viljum við þá gefa? Hvernig viljum við sjá þetta? Hv. þm. Willum Þór Þórsson hefur líklega gaman af því að fara út í náttúruna eins og ég og ég held að hvorugur okkar vilji að svæði verði girt af meira og minna af þannig að menn segi jafnvel: Þið fáið ekki að koma inn nema þið borgið gjald. Þið getið borgað það í næstu sjoppu, svipað og varðandi veiðivötn sums staðar, en við áskiljum okkur rétt til að sekta ykkur eða reka ykkur í burtu ef þið komið á þessi svæði án passa.
Viljum við að allt Ísland verði þannig? Áttum við okkur á því hvaða náttúruperlur eru þarna undir? Ég vil ekki sjá að það verði þannig. Þess vegna ræði ég þetta mál hér.
Varðandi upphæðirnar. Ég benti á að gistináttagjaldið og það lága gjald sem sett var á skilar okkur þó 250–300 millj. kr. þó að það fari ekki nærri því allt á ferðamannastaðina Það var að vísu í lögunum líka, það fara ekki nema 3/5 í ferðamannastaðina því að gjaldið var líka hugsað sem úrræði í vandræðum okkar eftir hrunið. Okkur hefði verið í lófa lagið að láta það allt saman renna til ferðamannastaða en það er ekki gert þannig að meira sé til ráðstöfunar á þessu ári. Ég hef áhyggjur af því, (Forseti hringir.) en í framtíðinni getur gistináttagjaldið verið hærra eða verið dreift með öðrum hætti á hverjum stað.