náttúrupassi.
Frú forseti. Já, það er rétt að ráðherrann talar um tíu til tólf náttúruperlur, en það er ekki skoðun fjármálaráðuneytisins. Eins og kom glöggt fram í máli hv. þingmanns þá hefur hann lesið frumvarpið og greinargerðina í tætlur. Þá veit hann að í umsögn fjárlagaskrifstofunnar kemur fram að talið er eftirlitið sem lagt er upp með í frumvarpinu verði ekki nóg vegna þess að þau sem þar héldu á penna eða slógu inn á tölvu töluðu um hundruð staða. Ætli það sé ekki nær lagi? Eins og komið hefur fram í dag þá geta menn ekki bara pikkað út einhverja tíu til tólf staði. Ætli þessir eftirsóttu ferðamannastaðir séu ekki jafnmargir og að minnsta kosti Íslendingar eru margir? Hver á sinn uppáhaldsstað.
Ég er sammála hv. þingmanni um að farsælast sé að kanna þær leiðir sem eru til staðar. Það er hárrétt hjá honum að gistináttagjaldið átti í ákveðnum bernskuerfiðleikum. Ég veit ekki betur en að unninn hafi verið bugur á þeim. Hæstv. ráðherra talar í greinargerð með frumvarpi sínu aðallega um tvo lítilvæga ágalla. Hún bætti því að vísu við í framsöguræðu sinni að það væri tafsamt, sérstaklega fyrir ný ferðaþjónustufyrirtæki, en það var ekkert rökstutt að öðru leyti.
Ég tek það fram að ég þekki ekki gistináttagjaldið hin allra síðustu missiri en ég var nálægt vettvangi þegar því var komið á, en ég held að það sé búið að slípast ágætlega til. Ég held að með því að hækka það og hugsanlega breyta því í samræmi við það sem fram kom hjá stallssystur hv. þingmanns sem talaði hér í dag og með því að taka inn annað, eins og til dæmis bílastæðagjald, sem hv. þingmaður ræddi hér um, og sömuleiðis að taka gjald fyrir notkun á hreinlætisaðstöðu, sem er brýnt, ég tel það bara alveg sjálfsagt — ég tel að þetta tvennt geri miklu meira en að dekka þá upphæð sem (Forseti hringir.) hæstv. ráðherra vill sækja með þessum hætti.