náttúrupassi.
Hæstv. forseti. Það er rétt hjá hv. þingmanni, mér finnst gistináttagjaldið vera sú leið sem mér að hér komnu máli hugnast best vegna þess að það er kerfi sem við höfum í einhverri mynd núna til staðar og getum þess vegna lagað og breytt án þess að koma með algjörlega nýtt kerfi. Svo finnst mér líka vera meðmæli með því kerfi að nágrannaþjóðir okkar í Evrópu virðast geta notað það með prýðisgóðum árangri í aðeins ólíkum útfærslumyndum.
Nei, ég verð að viðurkenna að ég hafði ekki velt nákvæmlega því dæmi fyrir mér sem hv. þingmaður kom hérna með um fjölskylduna sem fer í mjög langt ferðalag um Ísland, íslensku fjölskylduna versus erlendu fjölskylduna sem stoppar hér í styttri tíma. Bara góð spurning. Auðvitað eigum við að velta þessu líka fyrir okkur.
Það sem ég get svarað hér og nú án þess að vera búin að kafa eitthvað dýpra ofan í þetta er að mér finnst að við eigum einmitt að horfa til þess að hafa gjaldið ólíkt eftir því um hvers konar gistingu er að ræða, ég skal ekki segja hvort sleppa eigi því algjörlega á einhverjum stöðum eins og tjaldsvæðum, ég þekki það hreinlega ekki hvernig því er fyrir komið annars staðar. En mér finnst það alveg sjálfsagt mál að skoða, þ.e. hvernig við útfærum gjaldtökuna á ólíkan hátt eftir því um hvers konar gistingu er að ræða og hversu dýr og mikil þjónusta er innifalin í henni.