144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

störf þingsins.

[13:31]
Horfa

Silja Dögg Gunnarsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Í frétt Morgunblaðsins frá 31. janúar um innflytjendur og íbúafjölgun á Íslandi kom meðal annars fram að á 21. öldinni er aðflutningur erlendra ríkisborgara að baki nærri helmingi íbúafjölgunar á Íslandi. Landsmönnum hefur fjölgað um 50 þúsund á öldinni og eru aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta 22.690. Á síðasta ári var hlutfall erlendra ríkisborgara á Íslandi 7,4%. Þess má einnig geta að fjöldi leik- og grunnskólabarna með erlent ríkisfang hefur sjöfaldast á öldinni. Nú hafa 11% leikskólabarna og 6% grunnskólabarna annað móðurmál en íslensku.

Í umræddri frétt kemur einnig fram að án fjölgunar innflytjenda hefði hagvöxtur orðið minni en raunin varð. Ég vænti þess að fram undan sé áframhaldandi vöxtur atvinnulífsins á Íslandi. Þar nefni ég sérstaklega vöxt ferðaþjónustunnar og mannfrekar byggingarframkvæmdir, t.d. í tengslum við uppbyggingu kísilvera. Það er því viðbúið að innflytjendum haldi áfram að fjölga á Íslandi og við eigum ekki að láta þá þróun koma okkur á óvart. Þróun í innflytjendamálum er mun lengra komin annars staðar á Norðurlöndunum en hér á landi. Straumurinn þangað hófst fyrir alvöru á áttunda áratug 20. aldarinnar en það var ekki fyrr en í upphafi 10. áratugarins sem til dæmis Danir hófu að taka markvisst á málefnum innflytjenda og leggja áherslu á aðlögun þeirra að dönsku samfélagi. Það hefur kostað danska ríkið mikla fjármuni að vinda ofan af neikvæðri þróun sem varð á sumum sviðum þar sem áratugir liðu án þess að gripið væri til markvissra aðgerða.

Að mínu mati höfum við Íslendingar nú tækifæri til að nýta okkur reynslu nágrannaþjóðanna þar sem þessi þróun fer seinna af stað hér á landi. Fjölmenningarsamfélag er framtíðin, við eigum að taka vel á móti fólki sem hér vill búa og hjálpa því á allan hátt að aðlagast íslensku samfélagi. Það eykur hagvöxt og síðast en ekki síst (Forseti hringir.) auðgar það menningarlífið og víkkar sjóndeildarhring okkar allra.