144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[15:12]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er gott að heyra að hv. þingmaður er enn sama sinnis. Þá vil ég spyrja hvaða leið hv. þingmaður vill fara við að fjármagna þessar umbætur á fjölsóttum ferðamannastöðum. Hún nefndi gistináttagjaldið sem við vitum að dugar ekki til. Ég vil vitna í önnur skrif hv. þingmanns frá árinu 2010, í Fréttablaðinu 30. nóvember, með leyfi forseta. Þar segir þingmaðurinn:

„Kostnaður við náttúruvernd er að mestu leyti fjármagnaður af skattfé, enda er náttúra landsins ein okkar dýrmætasta eign sem þjóðar. Það er hins vegar eðlilegt að kostnaður við aðstöðu og umbætur á fjölsóttum ferðamannastöðum sé á einhvern hátt borinn af ferðamönnum. Það er í samræmi við nytjagreiðsluregluna svokölluðu, sem er einn af hornsteinum umhverfisréttar og það er í samræmi við almenn sanngirnissjónarmið. Ferðamenn sýna hóflegri gjaldtöku oftast skilning ef þeir sjá að fénu er sannanlega varið í góða aðstöðu og metnaðarfulla vernd náttúrunnar sem þeir koma til að upplifa.“

Er þingmaðurinn enn þá þeirrar skoðunar (Forseti hringir.) að nytjagreiðslureglan svokölluð sé (Forseti hringir.) hornsteinn umhverfisréttarins og sanngjörn? (Forseti hringir.) Og telur hv. þingmaður að kannski væri hægt að færa náttúrupassann undir þá reglu?