144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[15:56]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Að því marki sem það hlyti að verða niðurstaðan að komugjald, farseðlagjald, yrði líka að leggjast á innanlandsflugið, ef menn kæmust ekki upp með þá flokkun sem við ætluðum að reyna á sínum tíma, að hafa gjöldin mishá eftir lengd flugleiðar, þá er það alveg rétt að það mundi hafa áhrif á innanlandsflugið og þar með bitna á innanlandsumferðinni í ríkari mæli en æskilegt væri. Þess vegna væri náttúrlega besta niðurstaðan, ef við kæmumst upp með hana, komugjöld á farseðla til landsins á háannatíma, þegar Ísland er uppselt, frá maí til september. Það eru náttúruleg og efnisleg rök fyrir því. Þá er miðhálendið opið, þá er náttúran viðkvæmust og þá er hér mesta umferðin og mestur fjöldinn, og það væri mjög auðvelt að útskýra.

En það er ekki víst að við gerðum það. Segjum að við þyrftum að taka eitthvert slíkt gjald, ef við færum út í það, á innanlandsflugið líka, að þá er hægur leikur að jafna það út. Við erum hvort sem er að styrkja innanlandsflugið með þjónustusamningi milli ríkisins og Isavia til að kosta rekstur flugvallanna o.s.frv. (Forseti hringir.) Við getum bætt í þann þjónustusamning sem næmi (Forseti hringir.) fjárhæðunum sem kæmu inn vegna farseðlagjalds af innanlandsfluginu og útkoman yrði á núlli.