144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[15:57]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Hér í seinni ræðu minni, í fimm mínútna ræðunni, um þetta mál ætla ég aðeins að hnykkja á nokkrum frekari þáttum en þeim sem ég ræddi í fyrra skiptið þegar ég hafði 15 mínútur.

Fyrir það fyrsta vil ég segja að ég er algjörlega sammála þeirri meginhugsun sem kemur fram, þ.e. að afla fjár til að stórauka nauðsynlega uppbyggingu, viðhald og verndun á ferðamannastöðum og efla um leið öryggismál ferðamanna. Þetta er grundvallaratriði og ég held að allir kunni að vera sammála því.

Að þessum orðum sögðum vil ég, sem einn af nefndarmönnum í atvinnuveganefnd, segja: Já, við skulum vona að okkur takist á þeim skamma tíma sem eftir er til vors, áður en þessu þingi lýkur, að vinna breytingartillögur, sem verða greinilega miklar og margar — jafnvel að málinu verði algjörlega snúið frá umræddum náttúrupassa yfir í annars konar gjald sem hefur þann megintilgang að afla þess fjár, rúmlega milljarðs á ári, sem gert er ráð fyrir með náttúrupassanum og að vera einfalt og auðvelt í sniðum og ódýrt í innheimtu. Þess vegna hugnast mér ekki að fara margar leiðir eins og hér hefur aðeins verið rætt um.

Náttúrupassinn hefur þann ókost að Íslendingar sem ætla að fara á Þingvöll eða hvert sem er þurfa að borga, enda er hér gert ráð fyrir að tæpar 800 millj. kr. af þessu gjaldi komi frá Íslendingum, eða 15%.

Það sem er líka ókostur við þetta er eftirlitið, sektarákvæðið og eftirlitið. Ég hlýt að gagnrýna það að hvergi í frumvarpinu er fjallað um þær náttúrulöggur, held ég að einhver hafi talað um, sem á að ráða til starfa, sem eiga að fylgjast með hvort menn eru með passann eða ekki. Þá sem einhverra hluta vegna hafa ekki keypt passann, gleymt honum eða ekki skilið fyrirkomulagið eða vitað af því, má sekta um 15.000 kr. með aðfararheimild eins og hér hefur líka komið fram.

Á heimasíðu ráðuneytisins eru spurningar og svör um náttúrupassa þar sem velt er upp nokkrum leiðum sem ræddar hafa verið. Rætt er um þann ókost við brottfarar- og komugjöld — sennilega landamæragjöld sem mætti ekki leggja á íbúa á EES- eða Schengen-svæðinu — að það hefur þá líka þau áhrif sem við ræddum hér um með innanlandsflugið.

Skattur á flugfarseðil, það er hægt að framkvæma það. Ég held að það sé verri leið vegna þess að hún íþyngir mjög íbúum í nágrannalöndum, Íslendingum, sem koma heim fjórum til sex sinnum á ári, eiga þeir að leggja þar inn? Jú, það yrði að vera svoleiðis, en mér finnst það ósanngjarnt.

Ég ætla ekki að eyða tíma í náttúrupassann núna. Ég tel mig hafa sýnt fram á ókostina þar. Þá kem ég að gistináttaskattinum. Um hann segir, með leyfi forseta, á heimasíðu ráðuneytisins:

„Gistináttaskattur hefur verið við lýði um allnokkurt skeið og það sem fundið er honum helst til foráttu er að tekjurnar hafa alls ekki verið nægjanlegar.“

Virðulegi forseti. Þetta eru ekki mín orð. Þetta eru orð hæstv. ráðherra. Ef skatturinn yrði hækkaður, gæti það haft áhrif á eftirspurn? Hefur ekki öll skattheimta, sama hvernig við leggjum skattinn á, áhrif á eftirspurn? Jú, ég held það, en það er þó misjafnt hvernig það kemur niður. Þá er líka talað um að það sé ókostur að skatturinn leggist aðeins á eina grein ferðaþjónustunnar o.s.frv.

Ég hef nefnt það að í tíð síðustu ríkisstjórnar var gistináttaskatti komið á. Hann gefur 265 milljónir á ári miðað við 100 kr. Þá segjum við bara alveg hiklaust: Ef við ætluðum að ná í milljarð í þetta fagra verkefni sem lýst er í upphafi, og ég er algjörlega sammála, eins og ég sagði áðan, þyrftum við ekki að hafa hann nema 400 kr. Við getum svo tekið það upp, virðulegi forseti, eins og kom fram í frumvarpi síðustu ríkisstjórnar, að gjaldið verði kannski hærra á bestu hótelunum sem þeir sem eiga mest kaupa gistingu á og lægra á öðrum gististöðum. Það er enginn vandi að útfæra það. Ég kaupi ekki þau rök að ókosturinn við þetta sé að þá detti meira fram hjá í skilum til ríkisins. Það er verkefni ríkisskattstjóra, hann hefur verið að vinna mjög vel að því að fækka þeim leiðum sem þar eru.

Ég bendi á það enn einu sinni að út um alla Evrópu og í Ameríku líka þá er (Forseti hringir.) þetta vel þekkt leið eins og í Amsterdam þar sem 5,5% leggjast ofan (Forseti hringir.) á heildarverð. Og við getum tekið New York (Forseti hringir.) þar sem gjaldið er 430 til 930 kr. (Forseti hringir.) Þeir setja það niður eftir því (Forseti hringir.) hvað gististaðurinn er með margar stjörnur (Forseti hringir.) ef svo má að orði komast.