144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[16:04]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Pétri Blöndal fyrir hans orð í minn garð hvað varðar seinni ræðu mína. Ég sé nokkra ókosti við náttúrupassann, ef það hefur ekki komið nógu vel fram. Það er 15.000 kr. sektargjaldið. Það er eftirlitið, það verður dýrt að láta náttúrulöggurnar ganga um, það kostar of mikið að mínu mati og verður líka hjákátlegt að vera með á stöðunum fólk sem kíkir á hvort menn eru með passa og skrifar kæru ef svo er ekki. Það er bara ekki gott. Hugsið ykkur ef við lendum í rútu á Þingvöllum eða Gullfossi sem þannig er komið fyrir.

Við höfum heldur enga tryggingu fyrir því að allir verði inni í þessum pakka. Einstakir landeigendur geta sett upp gjaldstöðvar og landið okkar er svo lítið, það er svo fljótlegt að fara hringinn. Við getum ekki leyft okkur að hafa það þannig að ferðamaður á ferð hringinn í kringum landið þurfi á 10, 20 eða 30 stöðum að leggja fram kortið til að borga inn á svæði í einkaeigu.

Grundvallaratriðið í mínum huga, og það skal vera vinna mín í þessari nefnd, er að finna einfalda, ódýra og skilvirka leið og hafa þá leið helst þannig að allir í þessum geira setjist niður og sátt náist um málið. Ef við lendum í gistináttagjaldi, sem mér hugnast best í dag, vona ég að aðrir fallist á að fara þá leið. Það verður þá bara ein leið, einföld leið. Það má ekki verða þannig að fjölmargir þeirra sem eiga náttúruparadísir vilji ekki vera með og setji upp sínar eigin gjaldstöðvar. Það er auðvelt að glata niður því jákvæða sem náðst hefur við að fjölga ferðamönnum til Íslands með alls konar slíkum atriðum sem yrðu slæm og erfið afspurnar.