náttúrupassi.
Herra forseti. Ég vil undirstrika að það er prinsippið sem hér er aðalatriðið, að ekki sé greitt fyrir að ferðast um landið sitt. Í öðru lagi veldur það mér miklum áhyggjum að hér sé verið að festa í lög að það sé eðlilegt að einkaaðilar rukki fyrir aðgang að landi þar sem eru ferðamannastaðir sem fjöldi fólks heimsækir á ári. Það er eitthvað sem við í Samfylkingunni sættum okkur ekki við og ég held að meginþorri landsmanna sé ekki sáttur við það fyrirkomulag.
Varðandi eftirlitið þá er það þannig í almenningssamgangnakerfum að allir fara í gegnum eftirlit. Maður kemst ekki inn nema í gegnum ákveðnar vélar og með rétta tegund af miðum, svo eru ákveðnar rassíur til að ná þeim sem eru að svindla sér í gegnum þau kerfi. Þó það sé ekki nema klukkutímarassía hér og þar þarf meira en eitt stöðugildi í slíkt því að við erum að tala um ferðamenn sem eru á aðra milljón, samkvæmt áætlunum um fjölgun, plús alla þá Íslendinga sem eru á ferðalagi um landið sitt.
Það eru engin hlið nema setja eigi upp aðgangshlið að stöðum. Ég veit ekki hvernig það á að fara fram. Það er nánast ógjörningur. Þetta krefst því flókins eftirlits til þess að fólk taki yfirleitt mark á þessu og kaupi passa sem þennan. Annars verður tekjustofninn miklu rýrari en hér er gefið í skyn í kostnaðarmati því að fólk verður auðvitað fljótt að átta sig á því að það er ekki nein alvara að baki og ólíklegt að það lendi í rassíu.