144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[17:29]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Það má vel vera að hv. þingmanni sé alveg sama um hvaða skoðun ég hef, en málið var að það var ekkert uppbyggilegt í ræðu hv. þingmanns. Það voru engar tillögur um lausnir heldur var allt slæmt, slæmt, slæmt. Nú hafa komið fram margar hugmyndir í umræðunni. Ég treysti hv. nefnd vel til þess að fara í gegnum þær hugmyndir og leysa þær. Ef mönnum finnst einhver goðgá í því að Íslendingar séu að borga fyrir að fara um landið og vilji spara þeim þessar 500 kr. á ári — fimm hundruð krónur — þá er hægt að fara þá leið sem ég benti á, veita sérstakan persónuafslátt sem gengi til greiðslu á gjaldinu, skilyrt. Þá er það mál leyst.

Aðalatriðið er að koma með einhverja lausn sem gefur tekjur til að borga það sem þarf að gera til að vernda náttúruna og ég er nærri viss um að ferðamaður sem kemur til Íslands og er gert að borga 1.500 kr. gerir það með glöðu geði, mjög glöðu geði. Mér dettur varla í huga að menn vilji svindla á þessu kerfi þannig að eftirlitið verður bara frekar til málamynda frekar, til að tékka á því að menn hafi ekki gleymt þessu.

Ég geri ráð fyrir því að í öllum rútum og á leiðinni til Reykjavíkur og á öllum hótelum verði ferðamönnum bent á það að ef þeir ætla að fara að Gullfossi og Geysi þá þurfi þeir að hafa náttúrupassa á 1.500 kr. og hérna er skjárinn til að bóka það, eða appið til að senda í símann. Ég sé bara ekki vandamálið við innheimtu og eftirlit vegna þess að flestir munu líta á þetta sem jákvæðan skatt og flest fólk er heiðarlegt, herra forseti.