144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[18:00]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég veit að hv. þm. Pétur H. Blöndal trúir því ekki en ég fór þessa sömu leið og hann fyrir tiltölulega skömmu síðan, þ.e. á síðasta ári. Ég er ekki viss um að ég geri það aftur. Ég upplifði nákvæmlega það sama og hv. þingmaður, svöðusár í mosanum sem eru sums staðar orðin (Gripið fram í.) — já, já, sums staðar orðin mjög gleið og ljóst að menn eru farnir að krækja fram hjá þeim og mynda ný sár, þannig að ég skil þetta fullkomlega. En ég sagði líka í ræðu minni áðan að náttúran gengur framar almannaréttinum og þá er spurning hvernig við reynum að finna því farveg. Ég nefndi sérstakt dæmi, dæmi sem ég glímdi við sem umhverfisráðherra á sínum tíma, það voru Herðubreiðarlindir sem eru á jaðri þess að fara ákaflega illa. En hvernig eigum við að vernda það? Við gerum það hvorki með þeim leiðum sem ég hef verið að tala fyrir né heldur náttúrupassanum, alls ekki. Það eru aðrar leiðir sem þarf að fara þar.

Hv. þingmaður nefndi það síðan að hann hefði ekki verið að tala um stjórnarskrána. Hann er nú ásamt hæstv. iðnaðarráðherra eini maðurinn sem hefur talað með þeim hætti, síðast hér fyrir klukkutíma, að stilla upp almannaréttinum andspænis stjórnarskránni. Það sem ég er að segja er það að sambýli þessara tveggja þátta hefur verið ákaflega farsælt og það er ekki fyrr en núna með þessu frumvarpi sem mér finnst hæstv. iðnaðarráðherra lyfta rétti landeigenda umfram það sem ég tel sæmilegt, umfram hefð, umfram verklag og án þess að það liggi fyrir dómi. Ég tel hins vegar að þetta frumvarp muni leiða til dómsmála og það er meðal annars vegna þess að eftir því sem mér elnar aldur þá vil ég vera blíðari við fólk og sáttfúsari sem ég vil reyna að finna aðra leið.

Hv. þingmaður gat hér réttilega um tiltekna leið, þ.e. sérstakan persónuafslátt. Það er einnar messu virði að skoða það. Á því eru tveir augljósir ágallar strax. Hv. þingmaður veit hvað ég mun nefna sem hinn fyrri. Mér er umhugað um fátækt fólk. Það er fólk sem ekki borgar neina skatta og getur ekki nýtt sér þetta. Í öðru lagi þekkjum við það líka að þegar slíkar sérstakar undanþágur og frávik eru gerð þá hverfa þær í næstu …