náttúrupassi.
Herra forseti. Þegar náttúruverndarlög voru samþykkt 1972 þá var þar algerlega skýrt ákvæði um almannaréttinn. Þau voru endurskoðuð 1999, þá var hann þrengdur með þeim hætti sem hv. þingmaður nefndi hér, þ.e. settar voru takmarkanir á almannaréttinn gagnvart afgirtu landi, það var út frá sjónarmiðum og hagsmunum skógræktarinnar.
En þá er rétt að upplýsa hv. þingmann um það, svo best ég muni og tek fram að ég sit ekki í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, að í umdeildum náttúruverndarlögum, sem eru í frestun núna en eiga að taka gildi 1. júlí, er þessi réttur aftur rýmkaður í átt til fyrra horfs, þó ef ég man rétt ekki algerlega. Þar er því ákveðin viðurkenning á þessu viðhorfi. Ég held að það sé ekki heppilegt fyrir okkur að stilla þessu upp sem almannarétti andspænis stjórnarskrá eins og mér finnst hv. þingmaður gera. Nábýlið hefur gengið ágætlega og hví skyldi ég ekki eins og allir mínir áar mega fara með mínum hófstillta hætti einu sinni á 10 ára fresti upp á Keili ef ég passa mig, eða upp á eitthvert annað fjall eða labba um hálendið, fjöll og firnindi, í krafti þessa réttar? Hvern skaðar það?
Við vitum vel hvað það er sem veldur þessum aukna ágangi, það eru ferðamennirnir. Allt í lagi, við skulum þá reyna að hnitmiða okkar gjaldtöku gagnvart þeim en án þess að skerða þennan rétt. Það finnst mér vera mergurinn málsins. Mér finnst í þessari umræðu almennt hafa verið fullur vilji til þess. Mér finnst menn hafa verið jákvæðir, mér finnst hafa komið fram fullt af hugmyndum sem hugsanlega er hægt að splæsa saman, hugsanlega að velja einhverja eina. En ég hef alla vega lagt innvolsið úr mér á borðið og svo getur hv. þingmaður komið og gert grín að mér fyrir að vera tilfinninganæmur — en ég er það.