144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[19:19]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Bið ég þá forláts á oflæti mínu hér áðan og hv. þingmaður hefur skýrt þetta mætavel út. Ég undirstrika aðeins enn og aftur að ég er þeirrar skoðunar að ráðuneyti og ráðherrar eigi ekkert að vera að hringla með puttana í málum sem eru komin til kasta þingsins. Hv. þingmaður hefur skýrt það mætavel út og fyrir þá útskýringu og fyrir hennar frábæru ræðu undir störfum þingsins í dag útnefni ég hana, frá mínum bæjarhóli séð a.m.k., starfsmann dagsins.