144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[19:21]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni ræðuna. Mig langar til að inna hann eftir hans afstöðu til þess sem ég hef áður spurt um hér í umræðunni, þ.e. afstöðu hans og skilning á mikilvægi þess að skilningur þingsins á inntaki og eðli almannaréttarins liggi fyrir áður en frumvarp hæstv. iðnaðar- og viðskiptaráðherra um náttúrupassa verður leitt til lykta hér í þinginu.