144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[19:21]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég tel að það sé alveg víst að almannaréttinum, sem er okkur öllum hugstæður og heilagur í sinni, verði gert hátt undir höfði við þá vinnu sem fram undan er og að við velkjumst ekkert í vafa um að hann eigi sinn sess sem hann hefur átt í öll þessi hundruð ára. Ég fullvissa því hv. þingmann um það að ekki verður gengið á þann rétt.