144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

náttúrupassi.

455. mál
[19:23]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Eins og hv. þingmaður segir þá er þetta mál til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd og ég tel að þessi mál eigi að geta unnist þannig að þau þurfi ekkert að bíða hvort eftir öðru. Ég tel alveg ljóst, eins og ég sagði áðan, að hvað varðar þetta mál sérstaklega þá verði almannaréttur tryggður.